Þéttikítti PIB, ómálanlegt, fyrir glugga, lúgur, toppa ofl.
Hentar þar sem þörf er á öflugri þéttingu á fleti sem herðast saman, límir ekki og tekur ekki málningu.
Eldist mjög vel og altaf hægt að losa fleti í sundur.
Hægt að fjarlægja umframefni eins og kennaratyggjó, þarf því ekki að teipa.
Hentar á fleti s.s. lakk, ál, ABS, PMMA og krossvið
Fæst í litunum metalic, svart og ljós grátt
Fæst í 310ml túpum á kr. 2.750,-