Champion 1900/2200W (Atómstöðin)

 

    Léttasta 2Kw rafstöðin á markaðnum - aðeins 17,9kg og 55-58db/7m

          .. og nú einnig fáanleg Dual-fuel, bensín / gas  :)

 

 

 Nú er varaaflið ekki vandamál með Atómstöðinni frá Champion.

Inverter-tækni tryggir stöðuga og örugga straumgjöf með bestu fáanlegu tækni.

Ótrúlega hljóðlát og gangviss 80cc vél, sem eyðir aðeins 0,4L/klst m.v. 25% meðalálag og getur þá gengið í allt að 10 klst á einni tankfylli eða 15 klst á 5L gaskút (Dual-fuel). 

 

* Í ferðavagninn

* Til björgunarstarfa

* Í iðnað og verktöku

* Til garðyrkjustarfa

* Varaafl í rafmagnsleysi

* Í sumarhúsið

 

Hrein sínusbylgja gerir rafstöðina kjörna til þess að knýja viðkvæmann rafbúnað s.s. tölvubúnað, sjónvörp og rafeindatæki hvers konar.

Tveir 220V Schuco tenglar, alls 16A, einn 12V/8A tengill auk USB tengi og hleðslusnúru fyrir rafgeyma.

Kjörinn ferðafélagi í næsta ferðalag eða til þess að bjarga sér í rafmagnsleysi, vinna í garðinum, í sumarbústaðnum eða hlaða rafgeyma.

Með tengibúnaði er hægt að hliðtengja rafstöðina við aðrar frá Champion og vinna þær þá saman með samanlögðu afli.

 

Hægt er að fá sterka og góða yfirbreiðslu sem heldur rafstöðinni þurri í öllum veðrum.

Rafstöðinni fylgir allt að 3ja ára verksmiðjuábyrgð enda framleidd í Bandaríkjunum. 

 

Atóm 1900/2200W bensín   Kr. 149.900,-   Nánari upplýsingar
Atóm 1900/2200W bensín/gas    Kr. 199.900,-   Nánari upplýsingar
Yfirbreiðsla Atóm  Kr.     3.980,-  

 

 

Af hverju gas? :

 

* Lengri gangtími; Einnig er hægt er að tengja saman 2 eða fleirri gaskúta sem lengir gangtíma rafstöðvarinnar milli áfyllinga.

* Minni mengun; Mun minni mengun er frá bruna gass en bensíns og hentar gas því betur þar sem hætta er á reyk- og lyktarmengun.

* Einfalt í geymslu; Ekkert fljótandi bensín með tilheyrandi lykt.

* Lágmarks hætta á lekamengun; Engir vökvar sem geta lekið við áfyllingu með tilheyrandi eldhættu.

* Minna viðhald; Lægri viðhaldskostnaður vegna hreinni bruna. Sót og óhreinindi geta hlaðist upp í brunahólfi og blöndung.

* Lengri líftími; Bensín í eldsneytistanki gufar upp með tímanum og eyðileggst en gaskúturinn er lokaður.

* Einfaldari áfylling; Nýjum gaskút er einfaldlega smellt við en ekki hellt á tank eins og þegar bensín er notað.