NAVY 3.0 EVO 6HP - ePropulsion

 

      Fyrir vatnabáta, léttabáta og seglbáta.

 

Navy-línan frá ePropulsion er vinsælasta gerð þeirra af rafmagns utanborðsmótorum.

Hún býður upp á hreina orku fyrir létta báta úr áli eða plasti, slöngubát og seglskútur. 

Hægt er að stjórna bát með skafti  (mynd) eða þrenns konar fjarstýringum.

Á öllum gerðum stýringa er upplýsingaskjár og hnappaborð ásamt tengi fyrir öryggisrofa.

 

Navy mótorarnir henta jafnt á ár, vötn og sjó og eru áreyðanlegir, viðhaldslitlir og hljóðlátir.

Stór kostur við NAVY er að þeir hlaða rafgeyminn ef þeir eru dregnir s.s. á seglskútu undir seglum.

Rafgeymar seglbáta koma því gjarnan hlaðnir í höfn þegar kemur að því að stjórna bátnum á bás.

 

Navy línan notar 48V spennu sem hægt er að ná með því að raðtengja 12V eða 24V rafgeyma.

Hámarks afköst og ending fæst þó með E60 eða E163 Lithium (liFePO4)rafgeymunum.

 

 Sjá nánar um E-rafgeyma

 

 Skoða nánari upplýsingar um NAVY EVO á síðu ePropulsion

 

Navy 3.0 EVO + stýring    án rafgeymis    Frá kr. 642.950,-

 

 

 

 

-