Lausar hliðar


Lausar hliðar fyrir Fiamma markísur.

Festingar fylgja.

 

Hægt er að kaupa/nota eina hlið, 2 eða 3.

Hliðarnar eru ekki hugsaðar sem eiginleg fortjöld, heldur sem skjól fyrir veðri og forvitnum augum.

Allar einingar eru með gluggum en ekki með hurð eða gardínum eins og dýrari tjöldin.

Hliðar reimast saman á hornsúlu en eru ekki þéttar.


Endastykkin eru eins, með glugga, rangan inn eða rangan út.

Þau hanga í stöng sem festist á milli innri og ytri hluta markísunnar.

Framstykkið er með glugga og dregst í kílrennu í markísu.

 

 Kannið verð og lagerstöðu í verslun í s. 5554900