Um efnin frá Dekalin


 Dekalin bv
 framleiðir þéttiefni, fylla og lím fyrir flesta framleiðendur húsbíla og hjólhýsa í Evrópu. 

Límkíttin frá þeim eru MS-Polymer efni en ekki Polyurethan eða Silikon eins og algengast er.

Efnin eru því mun sterkari og endingarbetri en flest önnur lím á markaðnum, enda ætlað að endast í marga áratugi við allar veðuraðstæður.

 Dekalin-efnin gera fagmönnum kleift að gera við og þjónusta húsbíla og vagna þannig að þeir haldi upphaflegum styrk og endingu.