Tengiskinnur eru oft notaðar í jafnstraumskerfum til þess að lágmarka tengingar inn á rafgeyma, höfuðrofa eða segulrofa.
Eins stytta þær lagnaleiðir og einfalda uppsetningu, aðgengi og viðhald.
Sérstaklega á það við þegar um svera kapla er að ræða s.s. við spiltengingar, aflúrtök hvers konar og aukabúnað.
Flestar gerðirnar eru einangraðar og fást í ryðfrírri útgáfu sem hentar vel um borð í bátum og þar sem raki er mikill.
Straumflutningur getur verið allt frá 100 - 1.000A, með tengiboltum frá 1 - 24.
Helstu birgjar okkar eru Victron Energy, Blue Sea Systems og VTE.