Lithium / Victron Energy

 

   Nú á 30% afslætti af listaverði.

  Léttleiki, þol og taka minna pláss.

 

Lithium rafgeymar henta þar sem þyngd, fyrirferð og þol skiptir öllu máli.

Geymarnir frá Victron Energy henta t.d. í rafbanka fyrir varaafl knúið af búnaði frá þeim.

Geymarnir eru flestir búnir búnaði sem miðlar upplýsingum í gengum tölvu, símaapp, bluetooth eða upplýsingaskjái.

 

Þeir henta vel þar sem hleðsla er ójöfn, geymarnir tæmast ítrekað og standa tómir eða hálfhlaðnir.

Lithium geymar eru þó vandmeðfarnir og ekki sama hvernig þeir eru notaðir og/eða hlaðnir.

 

* Lithium rafgeymar henta ekki við hitastig undir 0°C nema þeir séu hitaðir.

* Gæta þarf að hraðlosunargetu ef á að nota þá við stóra áriðla.

* Ekki má hlaða Lithium rafgeyma með alternator nema með sérstökum stjórnbúnaði (BMS).

 

Frá Victron koma t.d.  geymar í einingu sem heitir Lithium Super Pack (LSP), sem eru með innbyggða hleðslu- og álagsstýringu.

Þeir eru einnig með innbyggðan bluetooth búnað, sem miðlar upplýsingum í síma og henta vel í ferðahýsi. 

Sjá nánar í gögnum sem hægt er að sækja hér að neðan.

 

Sækið frekari upplýsingar á pdf-formi um gerðirnar frá Victron Energy með því að smella á NG Smart eða LSP 

 

Neðangreindir rafgeymar eru til á lager eins og er en aðrar gerðir þarf að sérpanta.

 

LiFePO4 rafgeymar 

  Uppl.  

    Mál 

   Verð  

 
12,8V / 100Ast Smart    pdf  32x15x20   146.300,-  
12,8V /  60Ast  LSP   pdf  23x21x14     97.900,-  
12,8V / 100Ast LSP/HC   pdf  33x22x17   129.900,-  
12,8V / 100Ast LSP-a   pdf  30x22x17   122.900,-  
         
         
         
         
         

  Verið síðan í sambandi við verslun í s. 5554900 varðandi pantanir.

 

 

                                  > Skoða alla rafgeymana okkar<