Öflugir segulrofar frá Blue Sea Systems, sem oft eru notaðir sem höfuðrofar eða tenging á milli rafkerfa.
Einnig henta þeir sem fjarstýring á orkufreka notendur s.s. rafmótora, áriðla og fl.
Þeir eru straumvirkir, þ.e. taka stöðugt straum þegar þeir eru tengdir, eins og reley.
Hægt er að fá rofana púlsvirka, ML500/B. Þá þurfa þeir rafpúls í hvora áttina sem er en taka ekki straum á milli.
ML500 henta jafnt í bifreiðar, vinnuvélar, skip og báta, IP66.
Tengiboltar eru 10mm og silfurhúðaðir fyrir hámarks leiðni og lágmarks tæringu.
Hægt er að virkja MLB með rofa off/on, gjarnan með LED, sem lýsir þegar hann er tengdur.
ML500/A jarðtengir þá LED þegar hann er tengdur. Einnig hægt að nota lausa díóðu ef vill.
Hægt er að fá rofa frá BSS sem þjónar MLB vel, (2155, að neðan)
Straumþol: 500A (100%) - 700A (5mín) - 1450A (30sek)
Verð kr 47.650,-