Battery Guard 60A 6-35V

 
Spennuvirkur rofi sem vinnur á 6-35V spennu, stillanlegur.

Hann er hugsaður til þess að vernda rafgeyma fyrir of mikilli afhleðslu sem og ofhleðslu.

 

Búnaðinum er stjórnað með örgjörva (FET) og mælir stöðugt spennu og lætur vita ef spenna fer niður fyrir sett mörk í 15sek. samfellt (væla og/eða ljós). 

Ef engin breyting verður innan 1 mínútu rífur búnaðurinn rafstrauminn.

 

Hægt er að stilla útslátt og innkomu á fjölda vegu og breytast stillingar ekki þó svo búnaðurinn missi straum.

Rofinn verndar þannig bæði rafgeyma ásamt notandan við of lágri spennu.



BG60 kr. 17.980,-