Léttasta 2Kw rafstöðin á markaðnum - aðeins 17,9kg og 55-58db/7m
Nú er varaaflið ekki vandamál með Atómstöðinni frá Champion.
Inverter-tækni tryggir stöðuga og örugga straumgjöf með bestu fáanlegu tækni.
Ótrúlega hljóðlát og gangviss 80cc vél, sem eyðir aðeins 0,4L/klst m.v. 25% meðalálag og getur þá gengið í 10 klst á einni tankfylli.
* Í ferðavagninn
* Til björgunarstarfa
* Í iðnað og verktöku
* Til garðyrkjustarfa
* Varaafl í rafmagnsleysi
* Í sumarhúsið
Hrein sínusbylgja gerir rafstöðina kjörna til þess að knýja viðkvæmann rafbúnað s.s. tölvubúnað, sjónvörp og rafeindatæki hvers konar.
Tveir 220V Schuco tenglar, alls 16A, einn 12V/8A tengill auk USB tengi og hleðslusnúru fyrir rafgeyma.
Kjörinn ferðafélagi í næsta ferðalag eða til þess að bjarga sér í rafmagnsleysi, vinna í garðinum, í sumarbústaðnum eða hlaða rafgeyma.
Með tengibúnaði er hægt að hliðtengja rafstöðina við aðrar frá Champion og vinna þær þá saman með samanlögðu afli.
Hægt er að fá sterka og góða yfirbreiðslu sem heldur rafstöðinni þurri í öllum veðrum.
Rafstöðinni fylgir allt að 3ja ára verksmiðjuábyrgð enda framleidd í Bandaríkjunum.
Atóm 1900/2200W bensín | Kr. 147.900,- | Nánari upplýsingar |