Champion 7000W Dual Fuel

 

Vinnuhestur, sem gengur hvort sem er á bensíni eða propangasi.

 

Öflug grindar-rafstöð á hjólum með raf- og snúrustarti sem hentar m.a. iðnaðarmönnum, verktökum,  bændum og sem varaaflgjafi fyrir fyrirtæki og heimili.  1fasi  2 x 16A Schuco tenglar, 75dBA / 7m, þyngd 97kg.

 

* Í smíði og verktöku

* Í landbúnaði

 

Champion CPG7500E2-DF-EU er knúin af 439cc Champion 1s cylinders, 4-gengis vél sem afkastar 6000W undir stöðugu álagi en að hámarki 7000W undir skammtímaálagi á bensíni en 5000W / 5500W á gasi. 

 

Með 23L eldsneytistank gengur stöðin í allt að 8klst undi 50% álagi á bensíni en 10klst á 10kg gaskút. Vélin er með öryggisútslátt á yfirálagi og smurolíuhæð og er hönnuð með lítið viðhald og langan líftíma í huga. Rafallinn er búinn há- og lágspennuvörn til þess að vernda viðkvæman rafbúnað. Rafstöðin er einnig búin sérbúnu kaldstarti sem tryggir örugga ræsingu að vetri. 

 

Vörunr. CPG7500E2-DF-EU     Kr. 264.900,-      Nánari upplýsingar   

 

Yfirbreiðsla CH 5000-7000       Kr. 6.990,-        

 

Ofngreind verð gilda til áramóta eða á meðan birgðir endast.

 

Af hverju gas? :

  

* Lengri gangtími; Hægt er að tengja saman 2 eða fleirri gaskúta sem lengir gangtíma rafstöðvarinnar milli áfyllinga.

* Minni mengun; Mun minni mengun er frá bruna gass en bensíns og hentar gas því betur þar sem hætta er á reyk- og lyktarmengun.

* Einfalt í geymslu; Ekkert fljótandi bensín með tilheyrandi lykt.

* Lágmarks hætta á lekamengun; Engir vökvar sem geta lekið við áfyllingu með tilheyrandi eldhættu.

* Minna viðhald; Lægri viðhaldskostnaður vegna hreinni bruna. Sót og óhreinindi geta hlaðist upp í brunahólfi og blöndung.

* Lengri líftími; Bensín í eldsneytistanki gufar upp með tímanum og eyðileggst en gaskúturinn er lokaður.

* Einfaldari áfylling; Nýjum gaskút er einfaldlega smellt við en ekki hellt á tank eins og þegar bensín er notað.