Snjóhreinsun þarf ekki að vera erfið og sársaukafull.
Hjólaðu í snjóinn með Snjóla og gefðu bakverkjunum frí.
Stattu uppréttur, því þú stillir hæð á handfangi eins og þér hentar.
Blaðið sjálft er úr stönsuðu stáli og með stillanlegum hliðarskurði.
Skerinn á stálblaðinu er með slitþolnu Polypropelene sem styrkir blaðið og lágmarkar yfirborðsmótstöðu.
Hægt er að fá Snjóla hvort sem er samsettan eða ósamsettan í flatpakka.
Snjóli er hrávara frá Kína og inniheldur pakkinn alla íhluti sem þarf til samsetningar en engin verkfæri.
Hrávara þýðir að íhlutir eru grófunnir og þarf oft að "fínisera" þá fyrir eða við samsetningu.
Þeir sem eiga verkfæri og eru vanir að laga hluti fara mjög létt með samsetningu enda fylgja leiðbeiningar á íslensku.
Þú getur fengið Snjóla ósamsettan í pósti eða sótt í verslun, samsettan eða ósamsettan.
Ósamsettur er Snjóli aðeins 750 x 380 x 165mm og vegur 12kg.
Reikna má með því að samsetning taki allt að 1 klst.
Snjóli FP | ósamsett - sótt/sent | 42.900,- |
Snjóli SS | Samsett - sótt | 57.900,- |