BLUETTI EP600 er 3ja fasa orkukerfi fyrir heimili, minni fyrirtæki og sumarhús.
Hægt er að hlaða kerfið með orku frá veitu, með rafstöð og með sólarorku.
Verð frá kr. 679.900,- m.vsk (1xEP600 + 1xB500) sjá verðskrá neðst á síðunni.
Fáðu tilboð í þína uppsetningu / 3 - 6 vikna afgreiðslufrestur.
Verði rafmagnslaust tekur Bluetti EP600 orkukerfið við á sekúntubroti (10 millisek) og tryggir að ekki verði rof á straumi.
Kerfið er stækkanlegt frá einni upp í fjórar rafhlöður hver turn og hægt er að tengja saman tvo EP600 turna.
Ath.: Einungis löggiltir rafvirkjar mega tengja búnaðinn og ganga frá vartöflu.
Hafðu samband og fáðu tilboð í Bluetti orkukerfi og tryggðu örugga orku á þitt heimili, vinnustað eða sumarhús.
Kynntu þér einnig lausnir okkar í sólarsellum og rafstöðvum ;)
Afl sem er sérsniðið að þínum þörfum
EP600 býður upp hönnun sem gerir kleift að para allt að fjórar B500 rafhlöður inn á einn EP600 turn, sem gefur
allt að 19,8kWst og hámarksafl upp á 6kW (3fx2kW).
Með tveimur orkubönkum og 2-8 rafhlöðum er hægt að geyma 9,9kWs - 39,6kWs með 12kW hámarksafli (2x(3fx2kW)).
* BLUETTI EP600 er með IP65 vottun, sem gerir það ryk- og vatnvarið.
* Kerfið er einfalt að setja upp og koma fyrir í nánast hverju húsi.
* Stjórnun og eftirlit getur farið fram á skjá, í gegnum Bluetooth eða Wifi
* Kerfið getur geymt orku frá rafstöðvum og sólarsellum samhliða orku frá veitu.
* Viðhaldskostnaður er enginn.
Sækja tæknilegar upplýsingar á pdf

Öruggari hleðsla - lengri ending
Til að tryggja öryggi og endingu notar EP600 LiFePO4 rafhlöðu með 10 ára ábyrgð.
BMS með Dual Core CPU og DSP tækni tryggir hámarks afköst og skilvirkni.
VERÐSKRÁ/áætlun - fáið tilboð í ykkar lausn
EP600 + 1 x B500 rafhlöður kr. 750.000 án VSK
EP600 + 2 x B500 rafhlöður kr. 1.000.000 án VSK
EP600 + 3 x B500 rafhlöður kr. 1.250.000 án VSK
EP600 + 4 x B500 rafhlöður kr. 1.500.000 án VSK
Verð eru birt með fyrirvara um villur og verðbreytingar.
