Snjóskafan Snjóli

 

Snjóhreinsun þarf ekki að vera erfið og sársaukafull.

Hjólaðu í snjóinn með Snjóla og gefðu bakverkjunum frí.

Stattu uppréttur, því þú stillir hæð á handfangi eins og þér hentar. 

Blaðið sjálft er úr stönsuðu stáli og með stillanlegum  hliðarskurði.

Skerinn á stálblaðinu er með slitþolnu Polypropelene sem styrkir blaðið og lágmarkar yfirborðsmótstöðu.

 

  • Hreinsið lausasnjó af gangstígum, pöllum og plönum á einfaldan hátt.
  • Viktar aðeins 12kg og er með skekkjanlegu blaði s.s. fyrir gangstíga.
  • Styrkt stálblað 76 x 44 sm með slitsterkum Polypropelene skera, snúanlegum
  • Loftfyllt, mynstruð dekk fyrir hámarksviðnám og flot; 4.10 x 3.50
  • Grázinkaðar stálfelgur með alvöru kúlulegum
  • Stillanleg vinnuhæð hlífir baki og upphandleggjum við óþarfa álagi.
  • Handfang með gúmmíhöldum, skaftlengd 104sm
  • Rétta verkfærið á nýfallna mjöll -  ekki ætluð á klaka eða þunga ruðninga

     Hægt er að fá Snjóla hvort sem er samsettan eða ósamsettan í flatpakka.

Snjóli er hrávara frá Kína og inniheldur pakkinn alla íhluti sem þarf til samsetningar en engin verkfæri.

Hrávara þýðir að íhlutir eru grófunnir og þarf oft að "fínisera" þá fyrir eða við samsetningu.

Þeir sem eiga verkfæri og eru vanir að laga hluti fara mjög létt með samsetningu enda fylgja leiðbeiningar á íslensku. 

Þú getur fengið Snjóla ósamsettan í pósti eða sótt í verslun, samsettan eða ósamsettan.

Ósamsettur er Snjóli aðeins 750 x 380 x 165mm og vegur 12kg.

Reikna má með því að samsetning taki allt að 1 klst.

 

Snjóli FP    ósamsett - sótt/sent   39.900,- 
Snjóli SS  Samsett  -  sótt   54.900,-